
A8 NetverslunA8 Netverslun er fullkomið netverslunarkerfi sem nýtir nýjustu tækni. Kerfið býður upp á fjölmarga möguleika svo sem sölu varnings til annara landa (multi language), Valitor greiðslugátt og sjálfvirka tenginu við Póstinn. Á síðustu árum hefur orðið bylting í netverslun á Íslandi. Sífellt fleiri fyrirtæki hafa sett upp netverslanir á vefsíðum sínum, þar sem notendur geta bæði skoðað vöruúrvalið og fest kaup á varningi með öruggum, einföldum og þægilegum hætti. Flest vefverslunarkerfi eru grundvölluð á sömu þáttum og ærir það óstöðugan að telja þá alla upp hér. En í meginatriðum er framvindan sú, að gestir vefsíðunnar fá ítarlegar upplýsingar um vöruúrval og verð, ásamt tækifæri til að kaupa ákveðna vöru og fá hana senda heim til sín eða í næsta pósthús. Það sem greinir á milli einstakra vefverslunarkerfa er hvaða viðbætur hvert kerfi býr yfir og hvernig hægt er að aðlaga það þörfum einstakra viðskiptavina.
|


Stjórnendur vefjarins geta uppfært upplýsingar, sett inn tilboð og breytingar, svo nokkuð sé nefnt, heima eða að heiman. Þeir geta jafnframt fylgst með birgðastöðu, sölu og öðrum helstu upplýsingum.
